Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort það gæti verið hægt að fela helkross í mönnum, merkja manneskjuna á einhvern hátt eins og t.d. Harry - örið.

Vegna þess það hefur svo oft verið sagt að síðasta orðið í síðustu bókinni muni vera -örið- þá fór ég að velta fyrir mér mikilvægi þess og það hlýtur eitthvað að standa á bak við það, þá á ég við meira en hún Rowling hefur sagt okkur hingað til.

Svo ég var að velta því fyrir mér hvort örið hans Harry's gæti nokkuð verið helkross sem Voldemort bjó til þegar hann myrti móður hans.
Þó svo að hann hafi verið að geyma sjöunda og síðasta helkrossin þangað til hann næði að drepa hann Harry sem tókst svo ekki.

Veit einhver hér hvort hún Rowling hefur útilokað það ennþá?