Þetta er alveg rétt… við stjórnendur erum engan vegin nógu dugleg hérna þessa dagana. Það er deginum ljósara.
Aftur á móti er það alltaf svona á milli þess sem bækurnar koma út að þá verður hægara á áhugamálinu.
Við kíkjum jú, alltaf á póstinn okkar Weasley, það tók mig bara örfáa daga að kíkja á bréfið frá þér, ef þú ert að tala um það. Það var of langur tími ég viðurkenni það, en ég kíki á póstinn minn lágmark einu sinni í viku. Oftast oftar en það.
En til þess að áhugamálið haldist lifandi verða þeir sem stunda það að vera duglegir að senda inn greinar, korka og spuna. Annars gerist ekkert.
Þegar sem flestir spunar voru í gangi vorum við með rosalega gott flæði en um leið og spunahöfundar taka sér pásur þá dettur allt niður, nema þegar nýjar bækur koma út.
Endilega verið dugleg að senda inn spuna og sögur.
Hvernig keppnir eruð þið að tala um?
Ég er opin fyrir hugmyndum. Endilega látið þeim rigna á mig.
Kveðja
Tzipporah
sem er með mikinn móral yfir tímaleysi en var að byrja í nýrri vinnu í vetur svo hún hefur talsvert minni tíma en undanfarin ár.