Nú er ég búin að lesa alla seríuna aftur frá upphafi til enda og er komin með fráhvarfseinkenni. Það væri þess vegna frábært ef einhver gæti bent mér á flotta og spennandi áhugaspuna um það sem gerist í næstu bók - helst á ensku, ég les allar bækurnar á frummálinu.