Hæ ég verð bara að tjá mig!!
Þegar ég las 6 bókina, þegar Dumbledor dó brast ég í grát. Ótrúlegt en satt! Ég er þessi persóna sem fer eiginlega aldrei að gráta og svo þegar ég las þetta atriði brá mér bara svo svakalega, (þó að ég hafði búist við þessu)að allt í einu láku tár niður kinnarnar á mér.
En í alvöru það getur ekki verið að hann sé endanlega dáinn!. Ég bara neita að trúa því!! Hann hlítur bara að vera búinn að vinna bug á dauðanum með einhverjum göldrum. Og það að Snape hafi drepið hann fannst mér næstum ógerleg tilhugsun og hvað þá þegar ég las það!! Ég er en að jafna mig á þessu!!
Ég bið ykkur endilega að svara ef að þið upplifðuð eitthvað í samræmi við þetta þegar þið lásuð bókina;)