Í fyrstu bókinni, þar grunar Harry að Snape ætli að stela viskusteininum, hann er búinn að komast að því hvað viskusteinn sé og hvar hann sé en það sem mér hefur alltaf fundist frekar skrítið er hvernig hann veit hvenær Snape ætlar að ná í hann? (Kannski ekki Snape, en þið vitið hvað ég meina,)
Hann vissi reyndar að Dumbledore væri ekki í skólanum þetta kvöld, en Dumbledore fer oft úr skólanum svo ég sé ekki af hverju Harry væri viss um að Snape ætlaði að nota einmitt þetta kvöld.
Mig minnnir eginlega að Harry hafi bara komið til Hermione og Ron og sagt þeim að Snape ætlaði að gera atlögu og að þau yrðu að stoppa hann. Kannski misminnir mig samt :S
Munið þið hvernig þetta var?
Born to talk - forced to work