Spunar eru frábær uppfinning sem gerir lesendum Harry Potters kleift að skapa sinn eigin lítinn töfraheim við hliðina á hinum stóra sem Rowling skapaði.

Margir spunar hafa verið sendir inn á netið þannig að á mörgum stöðum á Netinu má sjá spuna, misgóða. Margir spunar hafa einnig verið sendir hér inn á Huga og hafa hlotið mikilla vinsælda, en sumir náttúrlega lent í klónum á bíræfnum skítkösturum.

Sjálfur vona ég að fólk haldi áfram að skrifa spuna, gefist ekki upp og haldi áfram að gera góða spuna. Sjálfur hef ég verið að dunda mér við nokkra spuna og einn mun kannski koma hingað á Huga en það er ekki víst. Ég hef verið að lesa nokkra spuna og þeir bestu að mínu mati eru Lífið heldur áfram eftir Lyras og Unlikely Alliance eftir Tzipporah og ég vona að fleiri spunar bætist við í framtíðinni.

MENDOZA