Ég vil bara byrja á að segja að ég hef ekki hugmynd um hvort þetta gæti verið spoiler eða ekki svo farið varlega eða eitthvað svoleiðis…..

Ég var að spá um daginn þegar ég hafði lokið við 6. bókina og fór að hugsa um allar bækurnar…..hvað er það nákvæmlega sem Voldemort vill? Ég meina….hverjar eru ætlanir hans? Hvað vill hann? Er þetta sama gamla tuggan “Heimsyfirvöld”? Ég veit að hann vill drepa Harry, en áður en hann reyndi að drepa hann, hvers vegna gerði hann dráparana (sem voru ekki þá dráparar) að fylgismönnum sínum? Hvað vildi hann? Tengist þetta spádómnum eða var það eitthvað fyrir sem hann vildi áður en hann reyndi að drepa Harry?
Og það sem meira er….veit það einhver hvað hann vill?
Frekar skrýtin spurning hjá mér en ég finn bara ekki rétta orðin til þess að koma þessu rétt til skila, þó svo að ég hafi hugsað þetta frekar mörgu sinnum.