You guys….

var að sjá könnunina… Þið eruð nú alveg yndisleg og maður fer nú bara alveg hjá sér…
*roðn*

Ég verð nú samt því miður að hryggja ykkur og segja ykkur að ég býst ekki við því að ég geri framhald af Unlikely Alliance. Ég er hins vegar með annan spuna sem er búinn að vera að veltast um í hausnum á mér síðan í byrjun U.A. og ennþá sterkar eftir að ég las HBP. Gæti verið að það fari að bóla á honum. Hann verður samt mikið styttri og ekkert sérlega mikill hasar í honum… meiri drama-spuni ;P

Ég lofa samt engu.. það er búið að vera viðbjóðslega mikið að gera hjá mér eins og þið hafið kannski tekið eftir. Ég hef varla sést hérna inni til að samþykkja greinar hvað þá meira. Ég vona nú samt að hlutirnir fari að róast hérna hjá mér og þá ætti ég að geta sinnt huganum mínum svolítið betur.

Með þökk fyrir styrkinn sem þið gefið mér bara með því að vera til og vera alltaf svona jákvæð í minn garð.

Kveðja
Tzipporah