*Spoiler* fyrir það sem koma skal…

Í bókinni Goblet of Fire kom fram að Rita Skeeter væri ólöglegur kvikskiptingur - gat breytt sér í bjöllu - og notuðu Harry og Hermione það gegn henni til að fá hana til að taka viðtal við Harry. Það kom samt hvergi fram í myndinni - Goblet of Fire - að hún væri kvikskiptingur.

Mér finnst allt í lagi að sleppa hlutum sem hafa ekki stórvægileg áhrif á söguþráðinn. En þetta finnst mér hinsvegar hafa töluverð áhrif á gang mála í næstu bók/mynd.

Auðvitað getur verið að mig sé all svakalega að misminna…