Ójá, ég ætla að vera böggandi og búa til minn eiginn kork í stað þess að svara öðrum 8)
Það voru víst einhverjir að væla yfir því að Voldemort væri með asnalegt nef en hann á ekki að vera með nef! Það stendur í bókinni að hann hafi verið með rifur!
Voldemort var svalur… með svona ‘flowy’ skykkju og svona er þarna og er svo kominn eitthvað allt annað, vona að þið skiljið hvað ég á við ;)
Mér fannst allavegana endurkoma Voldemorts alveg brilljant nema það að þetta Ku-Klux-Klan lúkk á the Death Eaters var ekki alveg að gera sig :')
Ætli þeir geymi ekki nestið sitt eða eitthvað í þessum risa hettum? Grímurnar voru heldur ekki að gera sig, ég ýmindaði mér þær eiginlega bara svona hvítar grímur. Mér finnst það eiginlega bara meira skerí.
Líka það þegar Voldy var að snerta Harry þá virtist þetta nú vera eitthvað meira en bara pot í enni í svona tvær sekúntur… maður var farinn að fatta afhverju hún var bönnuð innan 12 8)
Hvað í andskotanum var Barty Crouch að gera í herberginu hjá Voldemort og Wormtail? Það var náttúrulega bara rugl þar sem hann var aldrei þarna og kom ekki fram fyrr en í endann á bókinni.

Hefði viljað sjá Vinky, Dobby og allt SPEW dæmið hjá Hermione :)
Kjóllinn hjá Hermione var blár ekki bleikur! Það er ekki það erfitt að redda bláum kjól…
Er líka nokkuð viss um að það hafi ekki verið aaalveg svona augljóst að Hermione væri hrifin af Ron í bókinni :/
Samt, þegar Harry var þarna vælandi yfir Cedric þá var þetta svo illa leikið að ég var næstum farin að hlæja… samt þá táraðist ég, pabbanns var svo leiður :'(
Dumbledore var vondur! Hann var bara með ofbeldi þarna þegar nafnið á Harry hafði verið dreginn úr eldbikarnum. Albus á bara að vera svona geðveikt rólegur og yfirvegaður og eitthvað… svona aldrei reiður!
Severus lamdi Harry og Ron :D Mér fannst það æðislegt ^^ Go Snape!
Filch var líka yndislegur… ég er orðin fangirl no.1 núna.
Hefði líka viljað sjá Ludo Bagman, finnst hann samt vera frekar pirrandi karakter eitthvað.

Quidditch var alveg klippt út, ekki sátt með það og líka að Malfoy fjölskyldan var ekki í sömu stúku og Weasley fjölskyldan og krakkarnir.

Síðan hvenær voru Beuxbatons og Durmstrang aðeins stúlkna og drengja skólar? Ég hélt alltaf að þetta væru ALLIR krakkarnir úr skólanum sem að kæmu ekki bara eitthvað 5-10 krakkar.
Líka innkoma beggja skólanna… mér fannst það bara vera alveg einstaklega hallærislegt.

Hvað var Harry samt að gera þarna eitthvað í kringum skólann og þar? Það held ég að hafi aldrei verið minnst á í bókinni en þetta var bara svona smá spenna sem var bætt í myndina og mér finnst að mætti alveg vera :)

Hvað varð um verðlaunin? 1000 galleonin sem Harry gaf Weasley tvíburunum?

*Vægur spoiler úr 6 bók! Ekki lesa skáletrunina!*
Hvernig eiga Weasley tvíburarnir þá að fjármagna WWW? Ætli það verði líka klippt út?

Ókey, ég er hætt að væla og þrátt fyrir þetta þá fannst mér þetta vera alveg yndisleg mynd :D
Ég elskaig