Í fyrsta lagi þá er þetta ekki manga-teikning.
Í öðru lagi þá er þetta ekkert til umræðu sem stendur. Umræðan kom upp um daginn og þá voru ennþá flestir sem tjá sig eitthvað á þessu áhugamáli sammála mér um að þetta væri bara nokkuð góður banner svo umræðan var felld.
Í þriðja lagi, þú virðist telja allar teikningar sem manga og það finnst þér ekki passa. Hvað viltu þá? Daniel Radcliff? Persónulega vil ég alls ekki sjá banner úr bíómyndunum því þeim er nú þegar gert allt of hátt undir höfði. Harry Potter er mikið meira en þessar lélegu bíómyndir (eins og við flest vitum) og ég vil draga það enn frekar fram með því að nota fanart í bannerinn.
Kveðja
Tzipporah