Málið er það að ég sá að einhver skrifaði um það að Harry gædi verið Horcrux og Voldemort hafi ákveðið að ráðast á hann með Avada Kedavra til þess að gera hann að Horcruxi.

En ég vil benda á það að það er mjög ólíklegt að það sé þannig vegna þess að Voldemort taldi Harry líklegastan til þess að vera sá sem gæti drepið sig (sá sem var talað um í spádómnum) og réðst á hann til þess að drepa hann (en ekki gera hann að Horcruxi) svo að hann þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að Harry drepi hann í framtíðinni.

Og svo skrifaði viðkomandi líka að Voldemort hafi ætlað að nota Avada Kedavra til þess að gera Harry að Horcrux en það er líka ólíklegt þar sem Avada Kedavra er drápsgaldur en ekki Horcruxaragaldur.

En það gæti verið að Voldemort hafi ætlað að slá tvær flugur í einu höggi með því að drepa Harry svo að hann geti gert annað Horcrux.


En svo er aldrei að vita. Kanski verður þetta svona væminn endir þar sem Harry deyr.

Og svo var einhver annar sem hélt að Dumbledore hafi kanski gert Horcrux.
En ég efast um það vegna þess að til þess að gera Horcrux þarf að fremja morð og það er eitthvað sem Dumbledore mundi áreiðanlega ekki gera og eins og kom fram í 6. bókinni hafði Dumbledore mikla óbeit á Horcruxum.


En ég vildi bara segja álit mitt á þessum kenningum þótt þær hafi verið MJÖG góðar þá eru þær samt ólíklegar að mínu mati.