Nú þarf ég að biðja ykkur Hugara um hjálp. Og ástæðan fyrir því að þið ætlið að hjálpa er sú að ef þið gerið það ekki þá þurfið þið að bíða miiiklu lengur eftir næsta kafla í Auga Eilífðar.

Þið þurfið að upplýsa mig um alla hluti sem Rowling hefur sagt um Remus, Sirius, James, Peter, Lily og Severus þegar þau voru í skóla. Ég er alltaf að lesa eitthvað nýtt og nýtt um þau sem ég hafði aldrei hugmynd um áður og það kemur mér í smá vandræði. T.d. var ég að lesa bara núna í kvöld að Lily hefði verið vinsæl hjá strákunum. Ég er að hugsa um að láta eitthvað af svoleiðis upplýsingum í spunann. Kannski.

Ekki hugsa núna “Af hverju getur hún ekki sjálf fundið þetta út!” því að ég hef ekki nærri því jafn mikinn tíma og ég vildi. Og ég veit ekki hvar ég get fundið allar upplýsingar. Svo… ef þið vitið eitthvað sem ROWLING sjálf hefur sagt, segið mér hér! Mér þætti mjög vænt um það.


Kveðja frá Gullu (sem þarf núna að nota sinn litla tíma til að læra. Og smalamennskur á helginni… Damn!)