Ég var svona að velta fyrir mér. Getur verið að Snape hafi svarið svona unbreakable wow til að vernda Harry? Kannski er það hluti af ástæðunni fyrir því að Dumbledore treystir honum.

Rök: Í fyrstu bókinni bjargar hann lífi Harrys.
Í þriðju bókinni reynir hann að verja krakkana fyrir varúlfnum (minnir mig, soldið langt síðan ég las hana.)
Í fimmtu bókinni leysir hann dulmálsskilaboðin frá Harry og lætur regluna vita.
Í sjöttu bókinni stöðvar hann einn deatheaterinn þegar hann ætlar að drepa Harry…
Kannski er þetta bara bull, en gæti samt alveg verið. Aumingja Snape…