Jæja.
Nú ert óþarft að merkja spoilera á þessum korkahluta. Þeir sem vilja lesa það sem er hér geta búist við stórum spoilerum úr 6. bókinni. Þetta er tekið skýrt og greinilega fram í Spoiler bannernum efst á síðunni okkar.

Upphaflega var ákveðið að merkja hér spoilera því fyrst var bara verið að velta fyrir sér hlutum sem myndu hugsanelga gerast. Það var áður en bókin kom út. Eftir að svo margir hafa lesið hana hefur þetta að sjálfsögðu þróast meira út í korkahluta þar sem fólk ræðir bókina og plott hennar. Að sjálfsögðu fyllist þá allt af spoilerum. Því er ekki nema sjálfsagt að vera ekki að merkja spoilerviðvaranir hér lengur.

Á hinn bóginn ætla ég að fara fram á að titlar korkanna verði lausir við alla spoilera. Bannað að senda inn kork sem heitir “Dauði *****” eða “***** drepur *****” eða eitthvað í þá áttina.
Korkarnir birtast á forsíðu hugi.is/hp og þar spilla þeir alveg eftir sem áður fyrir þeim sem ekki vilja sjá.

Þeir sem setja upp korka með spoilertitlum geta búist við því að korkinum og öllum svörum verði snarlega eytt!

Kveðja
Tzipporah