Ekki lesa þetta ef þið eruð ekki búin með bókina!







Já, ætlaði bara að tékka á því hvort það væri einhver annar hérna sem bara gæti ekki trúað því að Snape væri vondur? Það eru liðnir tvær vikur síðan ég kláraði bókina og ég trúi bara ekki enn að hann hafi gert þetta, drepið Dumbledore. Nú, ég veit að það gerðist og ég þoli ekki Snape fyrir vikið, hef samt aldrei þolað hann mikið, en þetta lét mig hata hann. En ég get samt ekki trúað því að hann sé alvondur….ég er viss um að hann eigi eftir að gera eitthvað úber gott að lokum! Annars verð ég illa svikin!

Já og eitt að lokum, ég held að Draco eigi eftir að koma yfir á “góðu” hliðina. Hann er ekkert vondur í sér, hann grét og hann ætlaði ekki að drepa Dumbledore, það er ég viss um!

Kv. Marta