Jæja. Þar sem ég er ný hérna á huga þá hef ég eina spurningu fyrir aðra og reyndari notendur. Ég var að velta fyrir mér hvar og hvort hægt væri að finna gamla korka. Nú hefur til dæmis rignt inn korkum eftir útgáfu 6. bókarinnar og þeir elstu löngu horfnir. Ég vissi heldur ekki alveg hvar ég ætti að setja þennan kork, hann á kannski ekki heima hér, en hérna er mesta umferðin og mestu möguleikarnir á svari svo vonandi verður mér fyrirgefið.