Jæja, ég er búin með bókina - tók “aðeins” 16 tíma að lesa. En ég vil ekki segja neitt til að eyðileggja ekki fyrir hinum - en ég er í sjokki! Og fer núna að telja niður dagana í hina bókina - ég spái 3 árum þangað til hún kemur út.
Bókin er mjög góð en það eru svo margar spurningar sem eru enn ósvaraðar - ég vona að það komi ekki væmið út en ég hálf skelf!!
Mér finnst brandararnir í þessari bók alveg frábærir - JKR er frábær í að láta persónurnar snúa útúr hjá öðrum. T.d. það sem Harry sagði við Snape svotil í byrjun bókarinnar…..
Held ég fari að sofa núna - byrja svo að lesa bókina aftur á morgun - skemmtið ykkur vel við að lesa :o)