Ég hef oft kvartað við sjálfa mig hvað það koma sjaldan nýjir korkar hingað inn. Mér finnst stundum að enginn hafi lengur áhuga á Harry okkar. En síðan tek ég smá tíma til að hugsa mig um og fatta að það eru ekki sam-hugarar mínir sem eru latir heldur er það ég sem er einstaklega ofvirk.
Ég kem nefnilega hingað inn á u.þ.b. hverjum degi og þá vil ég fá að lesa eitthvað glænýtt og krassandi;) Ég geri mér ekki grein fyrir því að hinir Harry Potter njerðinir eiga sér kannski líf annað en ég. :þ
Með þessum korki vil ég því biðjast afsökunar á fljótfærni minni og hrósa ykkur njörðunum fyrir einstakleg duglegheit og bara segja ykkur að ég elska ykkur ÖLL!!! (maður verður nú að hafa einhvern til að elska. Afhverju ekki bara alla?)