Einhverntíma í vikunni fór ég allt í einu að hugsa hvort að það væri ekki gaman að hafa svona fanartkubb hérna, þar sem væri hægt að senda inn fanart myndir eftir okkur sjálf. Það er einhvernvegin þannig í gangi á Myndasöguáhugamálinu, þar sem fólk sendir inn sínar eigin myndir. Ég vona að þessi korkur fái góðar undirtökur og að þetta sé hægt.