O.K.,ég veit að margir eru búnir að senda inn grein útaf þessu en ég er búinn að finna ansi mikið sem bendir til þess að þau verði saman.

1.bók og mynd:Ron bjargaði Hermione frá tröllinu,er það ekki?

2.bók og mynd:Ron reyndi að senda sniglabölvunina á Malfoy eftir að hann kallaði Hermione blóðníðing.ERUÐ ÞIÐ MEÐ MÉR?

2.mynd:Þegar Hermione kom í lok myndarinnar og faðmaði Harry þá snéri hún sér Ron,þau urðu hálfvandræðaleg,og síðan tókust þau í hendur.Áhugavert…

3.mynd:Hermione greip í hendina á Ron í tímanum hjá Hagrid,ekki satt?

4.bók:Ron líkaði við Ron alveg þangað til hann mætti með Hermione á jólaballið.Ég er viss um að hann hefur sagt það fyrsta sem honum datt í hug þegar Hermione spurði hvað var að!

5.bók:Ron gaf Hermione ilmvatn í jólagjöf og Hermione kyssti Ron á kinnina fyrir fyrsta kviddidsleikinn(veit ekki hvernig það er stafað)!Ja hérna….

Þetta er fyrsta greinin mín á Huga þannig að sendið inn álit!
HVER ER KONUNGUR ÁLFANNA?! ÉG ER KONUNGUR ÁLFANNA!