Um daginn var ég að lesa áhugaspuna og var að lesa nafnið á Hogwarts og ég byrjaði að pæla í því hvað nafnið þýddi, ég skrifaði það í tölvuorðabókina í tölvunni minni og fann ekki neitt, síðan skrifaði ég Hog og upp kom að það þýddi svín, síðan skrifaði ég wart og það þýðir varta og pælið í því að Hogwarts þýðir svínsvarta og Harry Potter fer í skóla sem heitir á íslensku Svínsvörtu skóli galdra og seiða, pælið í því, mér fannst þetta alveg drepfindið!!!