Merkur maður á sitt afmæli í dag 10. mars 2005.
Þessi ungi maður er með eindæmum gáfaður og snjall í verkum og orðum. Hann var í miklu uppáhaldi kennara sinni á skólagöngu sinni og í jafnvel meira uppáhaldi hjá vinum sínum. Hann var kosinn “skemmtilegasti kennari Hogwartsskóla” ekki fyrir löngu og ég efast um að það hafi verið margir sem eru mótfallnir þessum titli.
Þessi dregur bræddi sinn skerf af hjörtum og bræðir örugglega þónokkur enn. Hann hefur einnig hrætt nokkrar sálir með óvenjulegu ástandi sínu. En við vitum það öll sem þekkjum hann að hann er hið mesta gæðablóð og ekki mikið sem þarf að óttast við þennann sómamann, þ.e.a.s. ef þú ferð ekkert mikið út ca. þrjá daga í mánuði.
Þessi ungi maður er svo sannarlega gull af manni og ég held að ég tali fyrir alla þegar ég segji:
Til hamingju með afmælið, Remus Lupin. Ég vonast svo sannarlega eftir mörgum í viðbót.
Hann lengi lifi. Hipp hipp, Húrra.
Hipp hipp, Húrra.
Hipp hipp, Húrraaa!!!