Nú þegar sjötta bókin er alveg að fara að koma, þá langar mig svolítið til að vita: Hvort ætlið þið über HP-nördar að panta bókina á netinu eða að fara í Máls-og-menningar-röðina eftir henni?

Ég er sjálf alvarlega að spá í að fara í röðina, planta mér jafnvel niður fyrir framan morguninn áður.
Þá er bara spurning um að næla sér í eitt stykki skikkju og sprota.