Ég er hérna með áskorun á spunahöfunda til að forðast of margar Mary Sue-sögur:

Gerið smásögur eftir senum sem hefur verið sleppt í bókunum en minnst á!

T.d. þegar Weasley-tvíburarnir stálu klósettsetunni, hvað Ginny hugsaði þegar hún fann dagbók Tom Riddles/Trevor Delgomes, hugsanir Fawkes… hvað sem er! Það getur verið sniðugt að byrja að gera einhverjar stuttar sögur þegar maður er að reyna… læra á þetta í staðin fyrir að stökkva bara út í einhverja risastóra sögu sem maður hefur enga stjórn á. Það hefur verið minnst á mjög mikið í bókunum en senan sjálf er ekki. Skrifið það sem vantar inn í :D