Ég er ný búin að lesa allar bækunar, las þær til að æfa mig í ensku og núna er ég orðið Harry Potter fan.

Ég var að velta því fyrir mér hvað þið vilduð að væri í 6. bókinni, hvort sem það er líklegt eða ekki.

Ég vil að Ron og Hermione fari að fatta tilfinningar sínar til hvorts annað og hætti að þræta svona mikið.

Ég held að Harry fatti að hann hafi sama hæfileika og Tonks, þ.e. geti breytt útliti sínu. Því í fyrstu bókinni kom framm að sama hvað hárið á honum var klippt það varð aftur að þessum lubba sem hann er með.

Harry og Luna ???? Ekki viss um að það verði rómantík þar ef svo er þá er það bara í stuttan tíma.

Ég vil vita afhverju Dumbledore treystir Severusi Snape, en á alveg eins von á því að það komi ekki í ljós fyrr en í 7. bókinni

Man ekki eftir meira í augnablikinu