Ég vil hér með fyrir hönd mína og stúlkunnar sem situr við hlið mér flytja afmæliskveðju til eins af hinum virtu kennurum Hogwarts, Skóla galdra og seiða. Þessi kennari hefur unnið þar í nokkur ár og hafa störf hans þótt vera til sóma. Hann er mjög hæfileikaríkur þrátt fyrir ungan aldur. Þessi drengur er einstaklega skarpur og hefur þann merkilega hæfileika að geta þekkt lygi eða brotna reglu í mílu fjarlægð. Hann hefur heillað marga stúlkuna uppúr skónum þessi ungi maður og skilur örugglega eftir sig mörg brostin hjörtu á leiðinni.
Þessi ungi maður er hinn mesti sómamaður og ég held að við getum öll verið sammála um það.

Með þessum orðum vil ég segja til hamingju með afmælið minn kæri vinur og kennari Serverus Snape!!!

Hann lengi lifi! Hipp, hipp! Húrra!!!

Kv. Lucy Tree