Fyrir útgáfu Fönixreglunnar gengu sögur um það að einhver myndi deyja í henni og aðdáendur út um allan heim reyndu að giska á hver það yrði. Ég var auðvitað ein af þeim en bara upp á grín þar sem ég hafði ekki minnstu hugmynd um hver það gæti orðið, ég kom með ýmsar uppástungur en meinti engar af þeim. Það var ekki fyrr en dag einn um sumar að ég var að skúra í rólegheitum, komin eitthvað á leið með lestur fimmtu bókarinnar að ég fékk hugljómun. Ég var ekki einu sinni að hugsa um Harry Potter þegar það gerðist, allt í einu, að nafnið spratt upp í huga mér og ég vissi, bara vissi hver mundi falla. Og eftir því sem ég hugsaði meira um það, þeim mun augljósara fannst mér það og þeim mun sannfærðari varð ég.
Það reyndist svo líka rétt.
Er einhver hér sem gat upp á rétta persónu? Einhver sem var ekki bara að giska og nota einlhver rök, heldur einhver sem vissi það?