Er ég of háð bókunum mínum? Mikið búin að vera pæla í þessu =P Eins og ég hélt eitthvað á bók 1 og lagði hana frá mér, bróðir minn tók hana upp og var eitthvað fíflast með hana, hann missti hana í gólfið. Ég brjálaðist að hann skildi fara svona illa með harry Potter og öskraði og öskraði.

Svo eitt sinn þegar ég var að gera Triviuna, ég vildi hafa svarið orðrétt þótt ég vissi það, teygði mig í bókina sem svarið var í (teygði mig bara í bókina án þess pæla hvort væri rétt bók) opnaði hana og byrjaði að skrifa. Svo fattaði ég bara “Fuck! þetta er spooky!” Þá hafði ég opnað hana, bara tekið hana opnaði hana, og farið á akkurat þá blaðsíðu sem svarið var á. Venjulega veit ég í hvaða kafla (nema erfiðustu audda) en þetta var of spooky!