Ron og Hermione? Maður er nú eiginlega farinn að halda að Rowling sé farin að gefa okkur vísbendingar um að Ron og Hermione eigi eftir að enda saman. Eins og í bók nr.2 þegar veislan er kemur Hermione hlaupandi inn og faðmar Harry og ætlar að faðma Ron en hættir snögglega við og tekur í höndina á honum. Og í bók nr.3 í Umönnun Galdraskepna verður Hermione soldið hrædd og grípur í hendina á Ron og þau líta mjög vandræðalega á hvort annað og Hermione sleppur takinu á honum strax.
Hvað finnst ykkur?