Ekkert fer jafn í taugarnar á mér og litlir krakkar á Harry Potter. Það er ekki ætlunin að móðga einvhern með þessum skriftum en svona er það. Ég hef verið á móti litlum krökkum sem horfa á Harry Potter frá þeirri stund sem ég komst að því að til þess að missa ekki aðal markaðshópinn, litlu krakkanna ætti að yngja aðalleikarana upp. Sem er bara bull og eins gott það var ekki framkvæmt!

Svo fór ég á þriðju myndina í gær, Harry Potter og fanginn frá Azkaban, og nei var ekki allt morandi í litlum krökkum með foreldrum sýnum hlaupandi um allt. Ég veit að slatti af fólkinu hér eru eflaust foreldrar sem fóru með börnin sín á Harry Potter, en þetta er ekkert persónulegt svo ekki taka það nærri ykkur. Sumir eru á móti samkynhneigðum, ég er á móti litlum krökkum sem horfa á Harry Potter myndirnar en hafa ekki fyrir því að lesa bækurnar. En já, aftur að aðalefninu, ég var þarna í bíó í gær. Ég var mjög stutt frá því að standa upp og berja drenginn sem sat fyrir framan mig! Lítil dreng bjáni, fór hann ekki að monta sig og viljið þið sjá hvað er orðrétt sem hann sagði!

“Vinur minn hann á líka ALLAR 10 Harry Potter myndirnar! Pantaði þær á www.potterkaup.is og ég var hjá honum þegar hann gerði það! Þær kostuðu bara 10 krónur myndin, hann borgaði semsagt 100 kall fyrir allar 10 myndirnar. Og ég er búinn að sjá þær allar! Og seinasta myndin, hún er sko leyfð fyrir alla aldurshópa en samt koma geðveikt ógeðslegar benagrindur (já vek athygli á því að því miður vissu litlu fallegu börnin sem þarna voru mætt að þetta heitir VITSUGUR og þetta eru VITSUGUR ekki beinagrindur) og ein kom og hún át mann! Hún át Dumbledore!”

Ég var svo stutt frá því að annað hvort berja hann eða be ndahonum vinalega á það að bækurnar væru bara 5 eins og er og að þetta væri mynd númer 3 og hann væri staddur á focking FRUMSÝNINGU svo það væri nokkuð augljóst myndirnar sem væri búið að gefa út væru 10!!!!!!!!