Ég hef mikið verið að velta þessu fyrir mér undanfarið, ef Harry er umskiptingur (sem hann hlítur að vera, munið þið ekki eftir því í fyrstu bókinni þegar Petunia klipti af honum hárið og honum kveið svo fyrir að fara í skólann að hann grét sig í svefn, og vaknaði morgunin eftir með hárið eins og það hefði aldrei verið hreift)
Hvað ætli hann geti breytt sér í?

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort hann verði ekki eitthvað svart dýr með græn augu?
eða bara annað hvort…

Var að pæla hvort hann gæti ekki orðið:
-Ljón (útaf þessu öllu með Godric Griffindor)
-Svartur hundur eða jafnvel úlfur( Finnst það passa útaf öllu þessu mikla kolsvarta hári)
-Gæti verið Kráka eða Hrafn, jafnvel Örn (veit ekki af hverju, bara finnst það vera svo…, fljúga, kolsvartur, kannski græn augu, flug oft tákn frelsis)
Eða hvort hann gæti ekki jafnvel breyst í slöngu? (ég meina Hann og Voldemort deila sama blóði og einhver slatti af mætti Volda færðist yfir á hann þegar foreldrar hans dóu)

Allavegana þá hef ég bara verið að velta þessu fyrir mér, kemur reyndar pínu asnalega út þegar ég skrifa þetta en ég vona að þið fattið hvað eg er að fara út í… :P

Hvað finnst ykkur?<br><br><font color=“#800080”>-¤•.¸¸.•*×»</font> <font color=“#FF00CC”>BoomCat</font> <font color=“#800080”>«×*•.¸¸.•¤-</font
And let me tell you, she is not the brightest bulb in the tanning bed!