Eru fleiri en ég sem hafa horft á myndirnar og lesið allar bækurnar sem að finnst að það séu einhverjir neistar milli Rons og Hermione? Hef fundist það í bæði myndunum og bókunum. og persónulega finnst mér það allt í lagi. En hvað finnst ykkur?
Finnst ykkur að Hermione og Harry eigi eftir að enda saman, eða að hún endi með hvorugum heldur verði með stráknum sem hún fór á ballið í bókinni um Eldbikarinn? Viktor eða eitthvað svoleiðis.. í 5 bókinni skrifast þau á svo… Sjálfri fannst mér leiðinlegt að Harry og Cho skildu hætta vera hrifin af hvort öðru í síðustu bók.
Hvað finnst ykkur eigi eftir að gerast?