Ég hef núna lesið allar bækurnar og það er hvergi minnst á það hvernig krakkarnir vakna né komast í klippingu.
Ég veit að húsálfarnir búa um rúmin og taka til en valla fara þeir að vekja fólk eða hvað þá klippa þau. Og líka í fimmtu bókinni (EKKI LESA NÆSTU LÍNU EF ÞÚ HEFUR EKKI LESIÐ FÖNIXREGLUNA!!!) hvernig komst Harry inn í Galdramannráðuneytið þegar klukkan var svona seint og enginn var þarna. Líka eitt en þegar það er spáð einhverju eins og með spádóminn í Fönixreglunni hvernig kemst hann í glerkúlu einhverstaðar í Leyndardómastofnun er hann settur þar eða birtist hann bara þarna.