Hafið þið tekið eftir því að Harry Potter er með 3 einkenni í bókunum og Warner Bros tekst að klúðra þeim öllum.

Hann átti að hafa græn augu. “Emerald green”. Í myndunum er hann með grá-blá (held ég, allavega ekki græn)

Hann átti að hafa hár allt út um allt. það átti ekki að vera nein leið til að fá það til að liggja flatt.

Hann átti síðan að hafa ör á MIÐJU enninu. Ekki vinstra megin. (minnir að það hafi verið þannig. Horfi samt eins lítið og mögulegt er á myndirnar).

Og annað sem er ekki rétt:

Hermione átti að hafa úfið hár. Mjög úfið. Ekki bara fallega liðað eins og í myndunum.

Hagrid átti að vera stór. Tvisar sinnum hærri og fimm sinnum breiðatri en aðrir menn, ekki bara hávaxinn og feitur.