Ég var að spá í eitt. Sko í atburðalistanum hér á síðunni stendur að næsti atburður sé þegar Hermione á afmæli en það er 19.nóvember.
Og ég var að spá í sko, hvar sá sem sendi inn þennan atburð, eða bara einhver annar sem veit þetta, fékk þessar upplýsingar. Ég er ekkert að rengja þetta, það getur vel verið að þetta sé rétt, en ég er aðallega bara forvitin sko af því að ég á líka afmæli þennan sama dag sem sagt miðvikudaginn 19.nóvember

Kveðja
Sunnefa

Tilvitnun:

“Djöflasnara, djöflasnara… Hvað sagði Spíra prófessor aftur? Hún þrífst í myrkri og raka…”
“Kveiktu þá eld,” korraði í Harry.
“Já - auðvitað - en hér er enginn eldiviður!” æpti Hermione og neri saman höndunum í örvæntingu.
“ERTU ORÐIN BANDVITLAUS?” þrumaði Ron. “ERTU EKKI NORN, MANNESKJA!”

J.K. Rowling, Harry Potter og viskusteinninn, bls. 236</font
Kveðja
Sunnefa Black