Hæhæ..;) Langaði bara að gera nokkrar spurningar hérna úr Harry Potter bókunum, þetta er nottla einginn vandi fyrir hörðustu Harry Potter aðdáendurna..! ;)

1. Hvað heita Harry Potter bækurnar sem komnar eru út?

2. Hvað heitir Harry fullu nafni?

3. Hver voru dulnefni Lupins, Sirusar, Peters og James þegar þeir voru í skóla, á þeim tíma sem þeir gerðu kortið sitt fræga?

4. Hvað heitir kötturinn hans Filch?

5. Í hvaða bók kemur Skröggur Illaauga fyrir fyrst?

6. Hvað heitir höfundur bókanna? Og hvað verða bækurnar margar?

7. Hvað heitir bærinn og gatan sem Harry býr í á sumrin hjá frændfólki sínu?

8. Hvað er hús Weasley fjölskyldunnar kallað?

9. Í hvaða bók fer Harry Potter ásamt Hermione og Weasley fjölskyldunni (fyrir utan Molly Weasley) á heimsmeistarakeppni í Quidditch?

10. Hvað hétu mamma og pabbi Harrys?


Þar hafið þið það ;)

Kv Hrislaa =)
./hundar