Þegar maður les alla þessa korka um dauða Sirius, eru alltaf flestir sem segja, nei hann er ekki dáinn, hann kemur pottþétt aftur!! Afhverju eruði svona viss?

Auðvitað vonar maður að hann sé ekki dáinn, en þessi hlutur sem hann datt í hlaut að vera eitthvað sem veldur dauða! Ef Rowling vill að einhver eins og hann deyi í bókunum getur hún ekki látið það gerast á einhver venjulegan hátt. Það þarf að vera eitthvað sem enginn trúir að geti gerst, eins og t.d. þetta veil!

Ég held að hann sé dáinn. Það getur vel verið að hann komi eitthvað í hinum bókunum, kannski sem andi eða hugsun harrys en ég held að hann komi aldrei aftur eins og hann var. Það er ég eiginlega alveg viss um!