Hæ! Ég var að enda við að lesa 4. Potter-bókina eftir svolítið hlé, og fór þá að hugsa um svolítið í sambandi við Dementor-ana. Eða öllu heldur, eitt sem þeir gera gjarnan. Eins og þið vitið, þá eru Dementorar stundum notaðir í það að refsa glæpamönnum á þann hátt, að þeir “kyssa” þá, og sjúga þannig sálina úr þeim. Þetta var t.d. gert við Barty Crouch yngri í 4. bókinni, eftir að hann hafði gerst sekur um að a) vera Death Eater, b) myrða pabba sinn, Barty Crouch eldri, og c) þykjast vera Moody í Hogwarts.
Það sem ég skil hinsvegar ekki, er þetta: Þegar Dementor hefur sogið sálina úr einhverjum, hvað er þá gert við líkama hans? Ég vil ekki segja “líkið”, vegna þess að viðkomandi telst víst ekki “dauður”, heldur “verri en dauður”. En það kemur t.d. aldrei fram hvað er gert við líkama Crouch yngri… Var hann urðaður e-s staðar? Lokaður inni á St. Mungo's? Lokaður inni í skáp? :D Eða varð hann kannski sjálfur Dementor (það væri áhugavert… svona “assimilation” a la Borg í Star Trek…)
Eru einhverjir með kenningar? Lát heyra. ;)