Hefur einhver tekið eftir því að það sé eins og það eru engir skilnaðir hjá galdramönnum! Annað hvort eru foreldrar giftir eða annar dáinn. Undantekning frá reglunni var nú pabbi Voldemort en spáið í þessu!!!
Kannski galdramenn séu svona fullkomnir eða ég veit ekki hvað. Hefur einhver tekið eftir þessu??? Eða tek ég svona illa eftir?
Ég veit ég veit, þetta eiga að vera barnabækur en enginn er svona fullkomninn. Krakkar nú til dags vita alveg hvernig skilnaðir virka. Það er reykt í bókunum og drukkið vín en engir skilnaðir………….