Muniði eftir því að það hafi einhvers staðar komið fram að aðeins galdramenn af hreinræktuðum galdrafjölskyldum fái inngöngu í Slytherin heimavistina?
Finnst ykkur þá ekki dálítið skrýtið að Voldemort hafi fengið inngöngu í hana, þar sem hann átti Muggapabba?
Eins það að hatturinn velti því fyrir sér að setja Harry þangað, en mamma hans var af muggaættum.
Var það ekki bara sagt að Salazar Slytherin hefði bara viljað kenna hreinræktuðum? Var inntökuskilyrðunum þá bara breytt eftir hans dag?