Sko ég hef aðeins verið að pæla og ég hef komist að því að Bellatrix er ekki hinn raunverulegi morðingi Siriusar. Ég veit að hún drap hann og allt það en hún er ekki ástæðan fyrir því að hann er dáinn. Hinn raunverulegi morðingi Siriusar er J.K.Rowling. Ég veit að hún er snillingur en í augnablikinu er ég soldið fúl með að hún hafi drepið Sirius. Hún hefði alveg getað sleppt því.

En þetta er bara mín skoðun.