Eitt það besta sem mér finnst við Ootp er hvað Harry er kominn með stórt skap og hversu auðveldlega hann æsist upp. Það þurfti ekkert til þess að hann færi að öskra á fólkið í kringum sig.
En var ég að ímynda mér það en rífast Ron og Hermoine meira í þessari bók en hinum. Þau voru endalaust að rífast.
En Ginny kemur þó best út úr bókinni. Hún er ekki lengur svona skotin í Harry og getur talað við hann almennilega, ég spái því að hún eigi eftir að líkjast Fred og George nokkuð mikið í framtíðinni.
Hvað haldið þið?