Ég var að velta dálitlu fyrir mér. Þegar einhver hlýtur koss vitsugu verður hann að tuskudúkku ef svo má orða það, rændur persónuleika sínum og vilja, bara gangandi sálarlaust kál. Ætli það sé hægt að beita imperius (eða hvað sem hann nú aftur heitir) galdrinum á slíkt fólk og láta það lúta vilja sínum? Þar sem það er viljalaust fyrir ætti það ekki að sýna mikinn mótþróa, en það er hins vegar vafamál hve gagnlegt það getur reynst í höndum galdrafólks. En ef svo er, gæti þá ekki verið hætta á að fylgjendur Voldemorts búi til her fingrabrúða með því að láta vitsugurnar kyssa andstæðinga sína? Efast reyndar stórlega um að Rowling láti það gerast en hvað finnst ykkur?