Þessa grein sá ég í Morgunblaðinu


Nýja bókin um galdrastrákinn Harry Potter er svo stór og þung-og breskir lesendur eru búnir að panta svo margar-að konunglega breska póstþjónustan greindi frá því í gær að bætt yrði við bílum til að létta undir með póstburðarfólkinu. Nýja bókin, Harry Potter og Fönixreglan, eins og hún mun heita í íslenskri þýðingu, kemur út í Bretlandi á laugardaginn. Hún er 768 blaðsíður að lengd og um eitt kíló að þyngd. Dreifa á um hálfri mulljón eintaka af bókinni á laugardaginn, flestum í London, Glasgow og Edinborg, en samkvæmt breskum reglum mega póstburðarmenn einungis bera 16 kíló í einu.
“Þar eð bókin er mjög stór og þung höfum við gert sérstakar ráðstafanir til þess að dreifingin geti farið fram með bílum,” sagði ónafngreindur fulltrúi konunglegu póstþjónustunnar.
“Við höfum gert ráðstafanir til að tryggja að dreifingin gangi að óskum og enginn verði fyrir vonbrigðum. Þetta er umfangsmikið verkefni, en hin konunglega póstþjónusta er vön umfangsmiklum verkefnum,” sagði fulltrúinn ennfremur. Á þetta að tryggja að lestrafýsn breskra barna (og fjölsa fullorðinna) valdi ekki póstburðarfólki bakveiki. En þótt þessar sérstöku ráðstafanir hafi verið gerðar er björninn ekki með öllu unninn. Bókin er of stór um sig til þess að hún komist í gegnum venjulegar breskar bréfalúgur. Þess vegna fer komunglega póstþjónustan þess á leit við þá sem hafa pantað eintak og vænta þess á laugardaginn að þeir verði heimavið þangað til búið er að afhenda bókina.