Ég vil ekki vera dónaleg eða neitt svoleiðis en þegar ég sá könnunina sem illrir sendi inn fór ég aðeins að velta fyrir mér hverju ég ætti að svara. Svo allt í einu fattaði ég svarið sem ég vildi merkja við en sá svarmöguleiki var ekki til staðar. Ekki það að könnunin hafi verið neitt slæm, þú mátt alls ekki taka þessu persónulega. Það er bara það að mér finnst það vera allt um Harry Potter sem gerir þetta áhugamál flott. Allir svarmöguleikarnir…kannski finnst einum best að hann kunni að galdra, og öðrum húmor Rons eða góðvild Hagrids það besta… En er það ekki einmitt málið? Sitt sýnist hverjum og enginn er feiminn við að segja sitt álit og hafa sínar skoðanir. Það finnst mér best við þetta áhugamál.<br><br>stinkytoe has spoken

<b>Tilvitnun:</b><br><hr><i>Lífið er gáta. Lausnin er á öftustu síðu.
-Storm Petersen</i><br><h