Skv. frétt af The Sun er búið að útbúa fjólubláan 3ja hæða strætó til að nota í Harry Potter og fangann frá Azkaban sem nú er verið að mynda á Englandi. Harry flýr í strætó galdramálaráðuneytisins eftir að hann rekst á Sirius Black á götu í líki svarts hunds. Þegar Harry kemur um borð í vagninn sér hann marga galdramenn liggja í rúmum á meðan þeir bíða eftir því að koma að réttri stoppistöð. Vagninn fer í gegnum London í einni áhrifamestu senu myndarinnar. En sú sena var talin of hættuleg fyrir Daniel Radcliffe, þannig að áhættuleikari kemur í hans stað.
Voulez-vous coucher avec moi, ce soir?