Nú hefur verið í fréttunum að Gary Oldman hafi verið boðið hlutverkið sem Sirius Black.
Ég verð nú að segja að hann verður bara að taka það!!
Gary Oldman er snilldar leikari og hann myndi svo feitt ná Siriusi. Hann hefur nefnilega leikið vonda kallinn svo geðveikt oft, hann var rosalegur í Air force one og í Leon (veit ekki hvort allir hafi séð hana en mæli með því)
Hann hefur nefnilega svo lúkkið í það að vera Sirius, reyndar hafði ég ímyndað mér Gary Oldman sem Igor Karkaroff í fjórðu myndina en sem Sirius yrði hann betri.

Svo held ég að þriðja myndin verði geðveikt kúl, þeir gætu alltaf verið að sýna Sirius á flótta um Bretland og vera að breyta sér í Þófa. Það gæti orðið ýkt kúl!