Ég er nú ekkert góð að skrifa svona greinar, er að koma mér inní þetta, en…ég vildi bara létta á hjarta mínu hér á Harry Potter áhugamálinu.

Þannig er mál með vexti að ég hef verið gersamlega hugfangin af prófessor Snape síðan ég fyrst las bækurnar fyrir 2-3 árum síðan. Og eftir að hafa séð myndirnar tvær verð ég að segja að ég myndi selja sál mína fyrir Snape. ;) Alan Rickman nær honum FULLKOMNLEGA. Fátt sem ég get kvartað yfir…eiginlega ekki neitt. :Þ

Jæja, ekki fara að halda að ég sé eitthvað skrítin af því að ég er orðin að Snape fangirl, skoðið ykkur bara um á netinu og þið munið sjá að það skortir sko ekki Snape aðdáendur. ;D

Nú langar mig að vita hvort einhver af ykkur yndislegu Harry Potter aðdáendum fíla Snape líka…er leið á að vera ein um þetta, ef þið skiljið mig. ;) Endilega svarið og segið hvað ykkur fynnst! Bara please, no fighting!