Jæja ég var að “surfa” á netinu og rakst á helvíti skemmtilegan hlut á betra.net. Þar er próf sem snýst um hvaða persóna þú ert í Harry Potter bókunum. Þá svarar þú 20 spurningum um persónuleikann þinn. Þegar þú ert búin að svara þeim færð þú að vita hvaða persóna þú ert í Harry Potter bókunum. Þetta svipar til Lord of the Rings prófsins sem margir á huga hafa prófað.
Persónulega er ég Albus Dumbeldore og er ég mjög stoltur af því.

Hér kemur textinn um mig og hann:

DUMBLEDORE

Þeir sem, líkt og þú, líkjast Albus Dumbledore eru hæfileikaríkir, gáfaðir umhyggjusamir og hæfir leiðtogar. Þú gerir þér fullkomlega grein fyrir muninum á réttu og röngu og hefur góðan og sjálfsstæðan skilning á ýmis konar siðfræðilegum álitamálum. Þú átt auðvelt með að taka að þér að stýra stórum hópi og miskunsemi þín og vinsemd hefur aflað þér virðingar jafningja þinna.



Endilega segjið hver þið eruð í Harry Potter bókunum.

Kveðja Nedrud:)